Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Jákvætt blogg frá Öllu í London

 Við Heimir vinur minn sem býr hérna úti vorum saman að sækja um störf í síðustu viku en við vorum þvílíkt dugleg. Hann, Ingvar og Þurý eru búin að vera algjört æði, alltaf að benda mér á einhverja sniðuga hluti og aðstoða mig við allar mínar fyrirspurnir og þær eru sko ekki fáar....en þau eru búnin að vera ráðleggja mér hvar eigi að versla, fara í bíó, leikhús, borða og hvar á ekki að borða og allt milli himins og jarðar, takk you guys þið eruð búnin að vera frábær. 


Síðasta laugardag fórum við níu saman út að borða í tilefni af afmælinu hennar Þurýar vinkonu 8. desember en við fórum á stað sem Beach Blanket Babylon en það var algjört æði, maturinn og drykkirnir voru frábærir. Ég og Vigdís sem er að vinna hjá Landsbankanum ákváðum að fá okkur skot en það sem var fyrir valinu heitir fullnæging en ég fékk svo það hlutverk að spyrja sæta þjóninn um tvær “orgasm” veit eiginelga ekki hver roðnaði mest, var búin að gleyma að lífið gengur ekki bara út á vinnu og vinnu J veit ekki hvernig við Vigdís hlógum...bara gaman. Svo þegar við stelpurnar í hópnum vorum að fara kyssti hann nokkrar af okkur bless og vildi sko endilega fá sætu stelpurnar frá Íslandi aftur. Í framhaldi var farið á klúbb en við Hrund sambýlisvinkona og önnur Hrund sem vinnur líka hjá LÍ fórum heim kl. 02.  

Á sunnudaginn var svo farið á markað sem að held að heiti Ups and ups sem er rétt hjá Spitalfields og Brick Lane (frekari leiðbeiningar síðar). Þetta er markaður þar sem hönnuðir eru að selja vöruna sína, ofboðslega margt flott í boði en þessi hér hönnun fannst mér sérstaklega flott þar voru töskur, belti, ponchos og treflar!! 


Mánudagurinn 10. desember, afmælisdagurinn var æði J
Dagurinn byrjaði á því að ég las æðislegt bréf frá Hrund vinkonu sem var algjört æði. Strax í framhaldi fékk ég símtal útaf starfi sem ég hafði sótt um og fékk svo senda nánari starfslýsingu og átti að láta vita hvort ég hafði áhuga og að sjálfsögðu sendi ég henni í hvelli að mér litist sko vel á starfið en það er Marketing Executive hjá stóru fjármálafyrirtæki. Svo fór ég í viðtal sem gekk mjög vel og ráðningarstofan ætlar að áframsenda CV-ið mitt á tvö fyrirtæki og heyra svo í mér. Eftir viðtalið leyfði ég mér nú að ráfa aðeins um í “mallinu” sem ráðningastofan var í og var að leita að TIGI hársnyrivörum ásamt að líta eftir hlutum sem ég og Hrund ætlum að kaupa í nýju íbúðina. Mér hlakkar ekkert smá til að fara í það eftir áramót en við erum svo hagsýnar að við ætlum frekar að versla á útsölunum í janúar en allt á uppsprengdu jólaverði núna. Þegar ég kom heim þá fékk ég annað símtal útaf starfi og fékk starfslýsingu senda og fór strax í viðtal útaf því starfi í morgun, en ég fæ líklega að heyra útaf því fyrir helgi. Svo leyfði ég mér í fyrsta skipti að fara á myspace og slóra í tilefni dagsins og svara afmæliskveðjum og sonna það mjög skemmtilegt þar sem ég hafði ekki farið þangað lengi, en ég fékk þvílíkt mikið af afmæliskveðjum með tölvupósti-síma-sms-msn-bloggi og á myscpace, það ekkert smá nice þar sem ég er í London ;)Hrund kom heim með æðislegan afmælispakka handa mér en hún fór víst í fjögur tube til að ná í afmælisgjöf handa mér sem hún vissi að myndi slá í gegn en það voru hárvörur frá TIGI sem ég er búin að ætla að fá mér frá því ég kom en þær eru sko ekki til allsstaðar hér í London eins og hefur komið fram. Svo um kvöldið fórum við Hrund og Þurý út að borða á eitt besta steikhús sem ég hef farið á, en það heitir Gaucho. Ég fékk mér nautasteik og bérne en steikin var æði ég er ennþá að hugsa um hana og er varla búin að jafna mig, ég var í skýjunum í gærkvöldi eftir frábæran dag!!
Knús á línuna og takk fyrir allar kveðjurnar.

Ég kem svo upp lista af veitingastöðum sem ég mæli með eftir áramóta þegar ég er búin að prófa nokkra og komin með smá reynslu.  Jæja, nóg í bili, hafðið það sem allra best þangað til næst.  

Lots of luv and hugs and kisses.
Alla Londonfari


Fréttir af Öllu í London, fyrsta bloggið :)

Jæja, loksins gef ég mér tíma til að setjast niður og skrásetja hið nýja líf mitt sem hefur vægast sagt verið viðburðaríkt... Annars er bæði gott og slæmt að frétta. Rétt áður en ég fer út kom í ljós að það var víst svikahrappur á netinu sem ætlaði að reyna hafa út úr mér 450 pund án þess að ég væri búin að sjá húsnæðið með eigin augum. Húsnæðið átti að vera á besta stað alveg downtown og leit vel út á myndum. Enda segja bretarnir hér “If it sounds to good to be true than it is”. En maður á nú ansi góða að og í þessu tilviki kom hann Ingvar vinur mér til bjargar og leyfði mér að gista hjá sér í rúma viku, þar eyddi ég fyrstu dögunum mínum í London á netinu að leita að húsnæði. Fór og kíkti á tvö alveg frekar ömurlega herbergi þar sem fjórir aðrir voru að leigja líka og á ömurlegum stöðum. Loksins þegar ég var búin að finna herbergi til jóla var mér enn og aftur var mér bjargað og það af Hrund vinkonu. Hún er með glæsilega íbúð til 14. desember, nálægt miðbænum og bauð mér að vera þar með sér.  Þá gat ég loksins farið að einbeita mér að atvinnumálum aftur en ég þurfti að sleppa afleysingarvinnunni sem ég var kominn með af því að húsnæðið klikkaði. Síðan fáum við Hrund alveg frábæra íbúð afhenta þann 10. desember á afmælinu mínu. Sú íbúð er til framtíðar svo þá eru þau mál komin í höfn en það er meira en að segja það að flytja svona á milli landa þar sem í raun allt er nýtt og kerfið kannski ekki alveg eins og það sem maður er vanur. Íbúðin er splunkuný með tveimur baðherbergjum og við fáum svefnsófa og sófa svo það verður nóg pláss, myndir koma fljótlega ;)


Svo þurfti nú endilega meiri ólukka að fylgja...ég lenti í rosalegum þjófnaði, það var fylgst með mér slá inn pin númerið mitt í verslun þrátt fyrir að halda hendinni yfir þá sáu þjófarnir númerið mitt en það eru víst til margir snillingar í svona málum hér í London og það var farið strax í hraðbanka og tekið út 750 pund (eða 95 þús. ísl.). Afþví að pin númerið var notað þá er víst ábyrgðin öll mín megin þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að tala við Mastercard (alls ekki nógu ánægð með það en ég held ennþá í vonina að ég fái eitthvað út úr tryggingunum). Ég ætla þó með málið lengra svo að það sé gert eitthvað til að koma í veg fyrir svona í framtíðinni, en Neytendasamtökin sögðu mér að kæra þetta til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, svo það er næst á dagskrá.  Svo enn meiri ólukka ég þurfti að veikjast í öllu þessu en ég fór á spítala eftir rúma viku með brjálað kvef og þá var ég víst komin með kinn- og ennisholusýkingu og fékk pensilín, svo nú hlýtur þetta að fara lagast og bjartari tímar framundan J


Atvinnumálin líta vel út.
Það var allt í lagi að hafa frestað tímabundnu vinnunni þá hef ég haft meiri tíma til að sækja um og vera í samskiptum við aðrar ráðningarskrifstofur og fara í viðtöl, það liggur ekkert rosalega á því að byrja alveg strax að vinna. Ég er búin að fara í tvö viðtöl hjá vinnustöðum hérlendis og er að búin að fara í þrjú viðtöl hjá ráðningaskrifstofum og svo var ég að fá ágætis starfslýsingu einnig senda og var í viðtali hjá fyrirtæki sem heitir Grass Roots í gær og fleiri viðtöl á döfinni. Launin eru nú kannski oft á tíðum aðeins verri hér en ekki alltaf en á móti kemur að skattarnir eru betri hér....en ég hef fulla trú á því að ég finni skemmtilegt starf við hæfi fljótlega J


Ég er nú líka búin að skemmta mér...fara á æðislega veitingastaði, kynnast yndislegu nýju fólki, get allavega alveg mælt með Nobu frábær matur og töff staður sem frægt fólk laumast stundum inná. Hjálpaði til á jólaballi hjá Íslendingafélaginu sem var frábært sá fullt af nýjum andlitum sem ég á eftir að kynnast betur!!



Þetta var nú  bara svona stutt yfirlit, það er greinilega full vinna að koma sér inn í menningu og líf annara þjóða þó svo maður hafi nú bara hoppað til London. Mun skrá það hjá mér að gera gátlista sem hægt væri að afhenda fólki sem tekur uppá því að flytja, það hefði nú sparað manni heilmikið. En annars þá leggst London mjög vel í mig og ég er full tilhlökkunar að takast á við það sem bíður mín. Ég hlakka ekkert smá til að sjá ykkur um jólin og vonast eftir að hitta sem flesta. Endalaust knús á ykkur öll og takk fyrir allt og allt ....Ykkar Alla


Höfundur

Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband