Leita í fréttum mbl.is

Janúar í London

Ég flaug aftur til London þann 3. janúar og fór út að borða um kvöldið með Ingvari og systir hans og kærastanum hennar á indverskan stað sem heitir Shampai og er á Brick lane en þeir eru nokkrir góðir þar t.d. PREEM líka.

BT símafyrirtækið kom til okkar þann 4. janúar til að tengja símalínuna okkar ég var rosalega hamingjusöm þegar þeir komu. Um kvöldið fórum við svo á rosalega góðan japanskan stað sem heitir "ROKA"  en ég get hiklaust mælt með honum, en hann er svona í dýrari kantinum og er staðsettur hjá Tottenham Court Road station. Laugardaginn 5. janúar kom tæknimaður frá SKY að tengja sjónvarpið, svo ég gat horft á frábæra gamanþætti á laugarskvöldinu. Ég fór svo og keypti mér USB data modem sem gerir mér kleyft að fara á 3G Internet hvar sem en það voru þrjár vikur þangað til að við fáum okkar heim, allt að gerast á sama tíma. Hrund kom þann 6. janúar en það var mjög gaman að fá hana ;-)

Ég er búin að fara í nokkur viðtöl eftir að ég kom tilbaka en þau ganga mjög vel þessa dagana og ég er með umsóknir inni hjá Orange, SKY, Virgin, Teletextholidays, GE Money bara svona til að nefna einhver fyrirtæki. Ég mun strax láta fréttir hér inn um leið og ég er búin að fá starf því ég verð rosalega hamingjusöm þá!!
Við Hrund fórum í IKEA til að kaupa okkur náttborð, kommóður og fleiri nauðsynlegar vörur til að halda heimili gangandi það var ekkert smá gaman að því og IKEA heima er sko ekkert stór miðað við þessa búð sem við fórum í. Ég pantaði svo einnig vörur hjá Argos sem mjög fjölbreytt búð, en þar fékk ég frábæran prentara, skannara, ljósritunarvél og ljósmyndarprentara á 30 pund sem er alls ekki mikið. Allar vörurunar og kassarnir sem við sendum til London komu í lok vikunar og nú fer allur aukatími okkar í að setja saman hluti og ganga frá. Ég ætti nú eiginlega ekki að segja frá þessu en við vorum tvo og hálfan tíma að setja saman eina kommóðu en þetta eru svo mörg smáatriði að þetta tekur mjög langan tíma en við vorum í rúman klukkutíma með seinni kommóðuna, við verðum líka út næstu viku að dúttla við að ganga frá og koma okkur aðmennilega fyrir. Íbúðin okkar á eftir að vera ekkerts smá flott og kózy. Við buðum svo Ingvari, Vigdísi og annarri Hrund í mat á laugardagskvöldið en reyndar voru Ingvar og Vigdís svo myndarleg að þau elduðu á meðan ég og Hrund leituðum í kössum eftir hinum ýmsu áhöldum sem vöntuðu til eldamennskunnar og svo eigum við bara fjóra stóla svo að gestgjafarnir skiptust á að sitja á kössum J Þegar við höfðum klárað yndislegu steikurnar okkar þá spiluðum við spil sem heitir Catan og okkur öllum finnst ýkt skemmtilegt og við ætlum svo innilega að endurtaka þetta kvöld mjög fljótlega.  

Jæja, nóg í bili ég þarf að halda áfram að sækja um störf og setja saman Argos og IKEA dót, hafðið það sem allra best þangað til næst. 

Lots of luv and hugs and kisses.
Alla Londonfari


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ og gleðilegt ár.

Aldeilis spennandi hlutir að gerast hjá þér. Verst að ég missti af "bjóðinu" hjá Jóhönnu Lind, kemst vonandi næst.

Híhí ég hló upphátt að lesa síðustu færslu þar sem þú notar "og sonna" eins og 11 ára dóttir mín þegar hún bloggar ..

Gangi þér vel í atvinnuleitinni .... og með sæta nágrannann   Hlakka til að heyra meira.

Anna Guðrún (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 10:34

2 Smámynd: Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir

Takk fyrir kveðjuna Anna mín. Já, það var ansi gaman hjá Jóhönnu frekar nice að ná að hitta marga í svona stuttri heimsókn, þú verður að komast næst.

Á maður ekki einmitt að láta bloggið vera svolítið persónulegt eins og maður talar en ekki að hafa allt eins og það á að vera....?

Vona líka að ég fari nú að sjá sæta nágrannan aftur

Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, 15.1.2008 kl. 19:30

3 identicon

Blessuð..

Oh.. það er bara æði að kaupa sér nýtt dót og búa sér til fallegt heimili, hlakka til að koma og sjá  þú segir bara má !!! og við stökkvum til þín  en allavega njóttu tímans í borginni stóru.. er á meðan er !! 

**koss koss og knús knús ***

Helga Jóns (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 19742

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband